Jóna Símonía Bjarnadóttir
fimmtudagurinn 26. mars 2020
https://safnarad.is/safnasjodur/uthlutanir-safnasjods/uthlutun-2020/
Byggðasafn Vestfjarða þakkar stuðninginn!
Jóna Símonía Bjarnadóttir
miðvikudagurinn 19. febrúar 2020
Byggðasafn Vestfjarða auglýsir laust til umsóknar starf safnvarðar. Um er að ræða 50% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Safnavörður annast, ásamt forstöðumanni, daglegan rekstur Byggðasafns Vestfjarða og hefur umsjón með varðveislu muna safnsins. Hann hefur umsjón með söfnun þjólegra muna, skrásetningu þeirra og viðgerð. Hann sér um að safnið sé til sýnis almenningi á tilteknum tímum og starfar samkvæmt safnalögum.
Helstu verkefni
Gerð kynningarefnis
Umsjón vefmiðla safnsins
Umsjón munasafns
Móttaka gesta safnsins
Hæfnikröfur
Háskólamenntun á ábyrgðasviði safnsins og /eða mikil reynsla af sambærilegum störfum
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samkiptum og rík þjónustulund
Frumkvæði
Skipulagshæfni
Góð tölvufærni
Færni í ræðu og riti á íslensku
Góð færni í ensku, önnur tungumál kostur
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknum skal skilað til Jónu Símoníu Bjarnadóttur, forstöðumanns, á netfangið jona@isafjordur.is . Umsókn skal fylgja ferliskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Jóna Símonía, forstöðumaður, í tölvupósti, sjá einnig www.nedsti.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2020. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Jóna Símonía Bjarnadóttir
föstudagurinn 13. desember 2019
Turnhúsið verður opið laugardaginn 14. desember og laugardaginn 21. desember kl. 13-16. Hún Grýla situr í helli sínum og það verður smá fróðleikur um hana en einnig geta börnin föndrað köttinn hennar sem og litað ýmsar myndir. Við minnum á að á safninu er hægt að kaupa ýmislegt í jólapakkann, s.s. Veislurnar í Neðsta, bækur Hjálmars Bárðarsonar, saltið úr Reykjanesinu og myndabandsdiskinn með tónleikum Villa Valla. Allir velkomnir