Sæbjörg Freyja Gísladóttir
mánudagurinn 4. maí 2026
Fjölmenni mætti í Krambúðina í Neðstakaupstað þann 1. maí en þá var opnuð sýningin Umvafin sem fjallar um Guðrúnu Vigfúsdóttur vefara og Húsmæðraskólann Ósk. Byggðasafn Vestfjarða tók Krambúðina í sína vörslu á haustdögum 2025 en það eru fyrstu stórframkvæmdir Byggðasafnsins síðan Jónshús var byggt árið 2005. Jónshús var byggt sem geymsluhúsnæði á sínum tíma og við hliðina á átti að rísa glæsilegt skrifstofu- og sýningarrými sem bið hefur orðið á, svo ánægjulegt er að Krambúðin sé komin í gagnið.
Á sýningunni um Guðrúnu vefara má líta glæsilegan fatnað og nytjamuni sem ofnir voru á vefstofu hennar. Þar má einnig gægjast inn í sögu húsmæðraskólans og lítil leyndarmál stúlknanna sem námu þar. Frambjóðendur flestra flokka mættu á opnunina og var ánægjulegt að sjá áhuga þeirra á menningarsögu svæðisins sem er okkur öllum svo mikilvæg. Sigríður Júlía bæjarstýra hélt áhugavert og þarft erindi sem má lesa hér og Jóna Símonía forstöðukona Byggðasafnins opnaði sýninguna.
Fram til 15. Maí verður sýningin opin samkvæmt samkomulagi en eftir það tekur við hefðbundinn opnunartími safnsins frá kl 9-17.
Sýningarstjórinn í Krambúðinni er Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur, Þorsteinn Traustason sá um smíðar og aðstoð og sýningarskáparnir voru smíðaðir af Ístækni á Ísafirði. Að auki voru fengnir tveir forverðir til ráðgjafar um uppsetningu á textíl.
Sæbjörg Freyja Gísladóttir
mánudagurinn 9. mars 2026
Sæbjörg Freyja Gísladóttir
miðvikudagurinn 14. janúar 2026
Í tilefni þess að Faktorshúsið í Neðstakaupstað varð 260 ára á síðasta ári mun Byggðasafnið, í samstarfi við Iðuna, standa fyrir námskeiði um varðveislu eldri húsa. Námskeiðið verður haldið í Neðstakaupstað dagana 27. og 28. febrúar og er ætlað fyrir fag- og áhugafólk um viðgerðir og viðhald eldri húsa.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í helstu þætti er varða endurbætur og varðveislu eldri húsa en á námskeiðinu verður til dæmis fjallað um lög og reglugerðir er varða viðgerðir og viðhald á vernduðum húsum, helstu tímabil og einkenni íslenskrar byggingarsögu, framkvæmd viðhaldsverkefna og byggingatæknilegar áskoranir varðandi viðgerðir og viðhald húsa.
Að námskeiði loknu ætti nemandi þekkja helstu laga- og reglugerðarákvæði, kunna skil á einkennum gamalla íslenskra húsa ásamt því að vita hvernig standa skal að framkvæmdum við gömul hús.
Það eru þær Alma Sigurðardóttir, sérfræðingur í varðveislu gamalla bygginga og Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari sem sjá um kennsluna.
Skráning er hér: https://www.idan.is/namskeid/1135/vardveisla-eldri-husa/