Björn Baldursson
mánudagurinn 19. ágúst 2013
Nú á dögunum bættist mikill kjörgripur við safnkost Harmonikusafns Ásgeirs S.Sigurðssonar. Það voru hjónin Sigurður Mar Óskarsson og Guðný Hólmgeirsdóttir sem komu færandi hendi og færðu safninu sjálfspilandi konsertínu. Þetta hljóðfæri er líklega frá því um 1920 og er þannig uppbyggt að í því er pappírsrúlla með götum sem hefur að geyma lagið sem spila á, en svo þarf að draga hana sundur og saman til að trekkja spilverkið eins og venjulega konsertínu til að lagið spilist. Nokrar aukarúllur fylgdu hljóðfærinu sem er í góðu lagi. Hljóðfærið kemur frá Ásmundarstöðum á Melrakkasléttu, heimaslóðum Sigurðar. Talið er líklegt að hljóðfærið hafi komið með erlendum sjómönnum.
Hér má sjá spilað á samskonar hljóðfæri http://www.youtube.com/watch?v=CJUrUIZm2rM
Harmonikusafnið er í stöðugum vexti og telur nú rúmlega 190 harmonikur, og Ásgeir er hvergi nærri hættur að safna. Í sumar kom til hans kona frá Kaliforníu og eftir að hafa skoðað safnið sagðist hún vilja ánafna safninu harmoniku mannsins síns og lofaði að senda Ásgeiri hana í haust.
Björn Baldursson
miðvikudagurinn 14. ágúst 2013
15-30 desember árið 1923 fór fram kappmót í flatningu á Ísafirði. Þessi kappmót fóru fram reglulega, en að þessu sinni bar sigur úr býtum Baldvin Sigurðsson. Verðlaunagripurinn var fánastöng úr látúni, mikill kostagripur, smíðuð af Helga Jóhannesi Sigurgeirssyni gullsmið hér á Ísafirði og var hún metin á 300 kr á þeim tíma. Nú um daginn afhentu systurnar Erla, Guðrún og Þuríður Magnúsdætur, barnabörn Baldvins safninu þessa fánastöng og mun hún sóma sér vel þar innan um aðra gripi. Baldvin Sigurðsson fórst með Gissuri hvíta í október árið 1929.
Björn Baldursson
föstudagurinn 2. ágúst 2013
Í morgun var Hermóður ÍS 482 sjósettur. Hermóður var smíðaður af Fali Jakobssyni í Bolungarvík og sonum hans Jakobi og Sigmundi árið 1928. Með milligöngu Einars Guðfinnssonar keypti Hermann Hermannsson á Svalbarði í Ögurvík bátinn árið 1930. Hermann gerði hann út þaðan til ársins 1945 og eftir það frá Ísafirði til 1956. Það ár seldi hann bátinn Gunnari og Magnúsi Jóhannessonum á Skarði í Skötufirði. Undanfarin ár hefur Hermóður verið í eigu bræðranna frá Svalbarði í Ögurvík , og á síðastliðnu ári afhentu þeir bræður Byggðasafni Vestfjarða bátinn. Í vor var Hermóður saumaður upp af Magnúsi Alfreðssyni trésmið á Ísafirði.