Fréttir og tilkynningar

Jólasýning

Jóna Símonía Bjarnadóttir

föstudagurinn 11. desember 2020

Laugardaginn 12. desember verður opið hjá okkur á safninu kl. 13-16.  Við erum búin að setja upp litla jólasýningu og föndurhorn fyrir börnin.

Samkvæmt sóttvarnarreglum getum við tekið á móti 10 manns frá 16 ára aldri en börn fædd 2005 og síðar eru undanþegin fjöldatakmörkunum. Við minnum á grímur og bjóðum spritt og hanska á staðnum.

Aðgangseyrir fyrir 18 ára og eldri er 1300kr, 950kr fyrir eldriborgara og frítt fyrir börn. Innifalið er kaffi og smákökur :-) 

Safnabúðin er opin á sama tíma en þar er að finna margt góðra muna í jólapakkann. Minnum á lita- og þrautabókina okkar sem er ný komin úr prentsmiðjunni.

Litabókin Neðstikaupstaður

Jóna Símonía Bjarnadóttir

miðvikudagurinn 9. desember 2020

Safnið hefur látið gera lita- og þrautabók með myndum úr safninu og af safnasvæðinu hér í Neðstakaupstað. Við fengum hana Marsibil Kristjánsdóttur listakonu á Þingeyri til að gera myndirnar. Bókin er til sölu á safninu og kostar 1500kr. Hægt er að koma við á skrifstofunni hér í Neðstakaupstað eða senda okkur tölvupóst á byggdasafn@isafjordur.is - við erum líka á fésbókinni.

Sólþurrkaður saltfiskur

Jóna Símonía Bjarnadóttir

mánudagurinn 9. nóvember 2020

1 af 2

Við minnum á að hjá safninu er hægt að kaupa sólþurrkaðan saltfisk sem breiddur var á reitinn okkar hér í Neðsta í sumar. Hjá okkur er líka hægt að kaupa bókina Veislurnar í Neðsta. Í henni er að finna fjölda uppskrifta úr saltfiskveislum safnsins sem og ýmsan fróðleik í máli og myndum um saltfiskverkun hér vestra. Bókinni fylgir geisladiskurinn Ball í Tjöruhúsinu þar sem saltfisksveit Villa Valla spilar seiðandi tónlist í takt við eldamennskuna.

Upp