Áhugaverðir staðir

Vélsmiðjan á Þingeyri

Vélsmiðja Guðmundar J Sigurðssonar & co. sem var stofnuð 1913.  Gamli hluti smiðjunnar þar sem renniverkstæði og málmsteypa er til húsa er enn að miklu leyti með upprunalegu fyrirkomulagi. Áhugi er fyrir því að gera safn í gömlu smiðjunni þar sem skoða má sögu vélsmiðjureksturs og þróun tækja í smiðjurekstri á Íslandi að miklum hluta frá byrjun síðustu aldar fram á okkar daga. 

Upp