Komdu á Loppumarkað í Turnhúsinu!
Hvenær? Þann 1. apríl (þetta er ekki grín)
Klukkan? KL 14-17
Af hverju? Því þarna verða til sölu munir úr Húsmæðraskólanum Ósk, bækur, bollar, dúkar, könnur og allskonar fallegt.
Til hvers? Því allur ágóði rennur til kaupa á hljóðbekk, sem við ætlum að hafa utandyra í Neðstakaupstað svo öll geti tyllt sér þar og hlustað á sögur og fróðleik
Það verður posi á staðnum, sjáumst!