Í þeim hluta Ísafjarðar sem kallaður er Neðstikaupstaður stendur elsta húsaþyrping landsins en hún er frá síðari hluta átjándu aldar. Sum af húsunum hýsa Byggðasafn Vestfjarða, bæði safnið sjálft, geymsluhúsnæði og skrifstofur. Í Tjöruhúsinu er vinsæll veitingastaður en aðrar byggingar hafa horfið í tímans rás eða bíða þess að vera grafnar upp og rannsakaðar.