Das Westfjords Regionalmuseum befindet sich in Neðstakaupstaður in Ísafjörður, im ältesten Häuserkomplex des Landes, der aus der zweiten Hälfte des 18. Jahrhunderts stammt.
Museen und Ausstellungen
Neuigkeiten und Ankündigungen

von Sæbjörg Gísladóttir
•
17. September 2026
Vor einigen Jahren besuchte Michael Liebler aus Deutschland unser Museum. Er war von Karítas' Geschichte und ihrem Durchhaltevermögen tief beeindruckt. Nun arbeitet er an einem Artikel über sie, der in einem deutschen feministischen Kalender erscheinen wird. Dieser Kalender stellt Frauen vor, die Pionierarbeit geleistet haben – ein Platz, den Karítas mehr als verdient hat. Außerdem hat Michael eine Radiosendung über Karítas produziert, in die man hier reinhören kann: https://zwischenfaelle.radio-z.net/feature/karitas

von Sæbjörg Gísladóttir
•
16. September 2026
Bereichere deinen Besuch im Byggðasafn Vestfjarða (Heimatmuseum der Westfjorde) mit unserem kostenlosen digitalen Guide, der in der Bloomberg Connects App verfügbar ist. Tauche tiefer in die maritime Geschichte, die Handwerkskunst und die Küstenkultur von Ísafjörður und den Westfjorden ein – jederzeit, überall und direkt von deinem Gerät. Was der Guide bietet · Exklusive Einblicke in die Ausstellungen: Entdecke einzigartige regionale Geschichten, von jahrhundertealter Kleidung aus verschiedenen Tierhäuten und traditionellem Bootsbau bis hin zur Geschichte von Islands früher S.I.B.S. Kubbar (LEGO) Produktion. · Traditionelles Leben: Erkunde authentische Artefakte und erhalte Einblicke in das häusliche Leben in den Westfjorden im 20. Jahrhundert. · Nahtlose Barrierefreiheit: Integrierte Screenreader-Unterstützung, anpassbare Schriftgrößen, Audioinhalte und dynamische Übersetzungen in über 40 Sprachen über Google Translate. Plane deinen Besuch & Download: Beginne sofort mit der Erkundung! Lade die App herunter, um vorab eine Vorschau unserer Sammlung zu erhalten, oder um deine Lieblingsausstellungen nach deinem Besuch noch einmal zu erleben. Achte bei deinem Besuch vor Ort auf die "Bloomberg Connects"-Schilder im gesamten Museum, um sofortigen Zugriff auf die digitalen Inhalte zu erhalten.

von Sæbjörg Gísladóttir
•
13. Oktober 2026
Það fór vart fram hjá Ísfirðingum og nærsveitafólki að í síðustu viku, dagana 7.-9. október 2026, var haldinn Farskóli safnamanna á Ísafirði. Þær Jóna Símonía Bjarnadóttir forstöðukona Byggðasafns Vestfjarða, Dagrún Ósk Jónsdóttir verkefnastjóri FÍSOS og Rannveig Jónsdóttir hjá Listasafni Ísafjarðar sáu um að skipuleggja ráðstefnuna og eiga þær þakkir skilið fyrir gott og óeigingjarnt starf. Fjörið byrjaði strax á þriðjudagskvöldinu, þegar safnafólkið fór að tínast til allsstaðar að af landinu og stefndu beint á Dokkuna sem opin var af þessu tilefni. Daginn eftir hófst ráðstefnan þar sem misrykugir minjaverðir menningararfsins fræddust og tengdust en erindin voru af ýmsu tagi þó flest hafi fjallað um inngildingu og aðgengi. Þar má til dæmis nefna erindi sem fjallaði um aðgengi og áskoranir fyrir fólk í hjólastólum, erindi um hinseginleika í safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur og gerð var greining á á sameiningum smærri safna. Þarna er aðeins fátt eitt nefnt af fyrirlestrum eins og gefur að skilja en þegar málstofum lauk á miðvikudeginum var haldið upp í rútu og til Suðureyrar. Þar gekk safnafólk með leiðsögn um þorpið og ýmsir höfðu orð á að langt væri síðan þau hefðu fundið peningalykt eða þau hefðu alls ekki fundið slíka lykt áður. Um kvöldið var stórkostlegt pöbbkviss sem var það stærsta sem haldið hefur verið á Dokkunni. Dagskráin á fimmtudeginum var nokkuð stíf fram á seinnipartinn en þá gafst safnafólki svigrúm til að kanna verslanir bæjarins og gera sig til fyrir árshátíðina sem haldin var um kvöldið. Matráður Edinborgarhússins sá um að halda ráðstefnugestum söddum allan tímann og veitingastaðurinn Logn sá um matseld á árshátíðinni og eiga þau hrós skilið fyrir góðan mat og fjölbreyttan. Á árshátíðinni sá Einar Viðar um veislustjórn með miklum sóma og hljómsveitin Drumbarnir voru með örlítið nördalega tónlistarþraut sem fell afskaplega vel í kramið hjá árshátíðargestum. Hljómsveitin F1 rauður sló svo í dans að borðhaldi loknu og spiluðu án nokkurrar pásu í á þriðja tíma fyrir troðfullu dansgólfi. Við sendum auðvitað engan heim frá önfirsku balli án þess að láta fólkið syngja Hafið eða fjöllin og þetta ball var engin undantekning, núna eru þau öll Vestfirðingar. Jóna Símonía Bjarnadóttir forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða var farskólastjóri að þessu sinni og hún var afar ánægð með það hvernig dagskráin tókst. „Við vildum gefa farskólagestum rými og tíma til að kanna svæðið á eigin vegum á milli dagskrárliða og ég held að það hafi tekist ágætlega. Allir veitingastaðir á Ísafirði fengu heimsókn frá gestum okkar og mér heyrðist að fólk hafi verið mjög ánægt með bæði farskólann og þessa heimsókn vestur.“ Farskólinn er haldinn árlega og stundum erlendis en á næsta ári verður hann á Húsavík. Þá fer vonandi sem flest safnafólk af Vestfjörðum norður til að fræðast, kynnast, tengjast og fá nýjar hugmyndir og samstarfsfólk en um það snýst einmitt ráðstefna af þessu tagi.



