FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
... eins og vera ber í 240 ára gömlu húsi...

Í tilefni Hrekkjavöku og Allraheilagramessu bauð starfsfólk Byggðasafns Vestfjarða upp á fræðslu um siði tengda þessum dögum þann 31. október í Turnhúsinu. Fræðslan var einkum miðuð við yngri kynslóðina sem tók vel við fróðleik um uppruna daganna. Safnkennari var dreginn fram úr safnageymslu einhversstaðar langt utan úr sveit og hann gat sagt börnunum frá því hvernig skilin milli heima verða óljós á Hrekkjavöku, líkt og á áramótunum og hvenær Hrekkjavakan flutti til Íslands og fór að líkjast Maskadeginum á Ísafirði og víðar, og Öskudeginum eða þrettándagleðinni annarsstaðar. Allar þessar hefðir lifa góðu lífi svo lengi sem það er fólk til að færa hefðirnar áfram.
Þessi fræðsla í Turnhúsinu var hluti af stærri Hrekkjavökudagskrá á Ísafirði. Sum barnanna fóru fyrst á Skuggasmiðju í Edinborgarhúsinu og enduðu svo daginn í Draugahúsi í Dokkunni. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til því Turnhúsið var fullt af börnum sem öll höfðu vit á því að vera í hræðilegum búning svo andarnir myndu ekki taka þau.... enda nóg af þeim í gömlum húsum líkt og í Neðstakaupstað.
Við þökkum Hauki Magnússyni kærlega fyrir að skipuleggja þennan skemmtilega dag!
Við minnum jafnframt á að skólahópar og aðrir hópar geta alltaf komið í heimsókn á safnið og fengið fræðslu um menningararfinn, kynningu á starfssemi safnsins eða hvaðeina sem óskað er eftir.
Sendið bara póst á byggdasafn@isafjordur.is og við tökum fagnandi á móti ykkur!



