FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
Vel var mætt hjá Guðna
26. október 2026
Miklar umræður sköpuðust á bókakynningu Guðna Th. í Turnhúsinu

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og prófessor Jóns Sigurðssonar hélt fyrirlestur um þorskastríðið 1971-1974 í Turnhúsinu á fyrsta degi Veturnátta. Hann kynnti þar nýútkomna bók sína „Vald hinna veiku“ sem er annað bindið í ritröð um þorskastríðin þar sem rakin er atburðarásin á miðunum og í stjónmálunum hér heima og erlendis. Fyrirlesturinn var vel sóttur og sköpuðust miklar umræður um málið.




