FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
Komdu og kíktu í Jólabúðina

Á laugardaginn 14. nóvember kl 13-17 verður Krambúðin í Neðstakaupstað opin fyrir öll jólabörnin sem leynast hér og þar. Þá ætlar Jóna Símonía að draga fram þær þúsundir jólabóka og blaða sem hún hefur sankað að sér seinustu 30 ár, og leyfa áhugasömum að skoða til að fá hugmyndir að jólaföndri, jólamat, jólasögum, hannyrðum og öllu því sem skemmtilegt er að útbúa fyrir jólin. Jólabúðin verður líka opin en þar er hægt að kaupa ýmsar klassískar jólavörur sem ekki fást annarsstaðar á svæðinu.
„Þegar ég er á ferðinni í Skandinavíu eða Bretlandi og finn bækur sem innihalda fróðleik um jól á svæðinu þar sem ég er stödd þá kaupi ég þær,“ segir Jóna Símonía. „Dönsk jól, norsk jól, ensk jól og svo framvegis. Og í þessum bókum eru uppskriftir, jólasögur og föndur. Og sama má segja um jólablöðin sem ég kaupi líka, þau eru sambland af jólamat og hugmyndum fyrir jólin. Og núna á laugardaginn ætla ég að bjóða fólki að koma og skoða og fá þá jafnvel innblástur fyrir sín eigin verkefni fyrir jólin,“ segir Jóna.
Jólabúðin er áhugaverð fyrir margar sakir en þar eru mest jólavörur frá Íslandi og Danmörku. „Fyrirtækin heita Pobra sem er gamalt danskt fyrirtæki sem framleiðir jólavörur og meðal annars Nissana eða jólasveinana sem við þekkjum öll og eru hengdir á hillur eða skápa og svo framvegis. Þá erum við með vörur frá Brink Nordic sem gera þessar klassísku fallegu jólakúlur og kúlur í formi kleina eða kleinuboxa og fleira. Jóladagatölin gömlu góðu eru hérna líka og jólate, þannig að öll jólabörn ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Jóna stendur vaktina með kaffi á könnunni og hlakkar til að taka á móti sem flestum og spjalla um undirbúning fyrir jólin.
