FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
Sýning 2022 - skipstjórnarnám á Vestfjörðum í 170 ár
25. júní 2026
Að sýningunni standa Menntaskólinn á Ísafirði - Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Háskólasetur Vestfjarða ásamt Byggðasafni Vestfjarða

á Byggðasafni Vestfjarða verður opnuð sýning í Turnhúsinu þann 5. október 2022 kl 18:00 í tilefni 170 ára sögu skipstjórnarnáms á Vestfjörðum. Skipuleg kennsla skipstjórnarmanna hófst hér á landi upp úr miðri nítjándu öld á Ísafirði, og síðar á Flateyri en Torfi Halldórsson skipstjóri kenndi
Ört vaxandi þilskipaútgerð upp úr miðri 19. öldinni, gat nú sótt mun dýpra en íslenskir sjómenn höfðu gert á opnum bátum um aldaraðir. Menntaðir skipstjórnarmenn urðu því bráðnauðsynlegir við þessar nýju aðstæður.
Að undirlagi annars ungs skipstjóra og athafnamanns, Ásgeirs Ásgeirssonar, og ýmissa þilskipaeigenda, var Torfi fenginn til að veita skólanum forstöðu. Sjómannaskólinn var starfræktur á Ísafirði 1852-57 var fyrsti sjómannaskólinn á landinu og fyrsti starfsskóli landsins.
