FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Stafrænn leiðarvísir að Byggðasafni Vestfjarða
11. september 2026

Bráðum getur þú skoðað safnið okkar hvenær sem er!

Eftir nokkrar vikur mun Byggðasafn Vestfjarða birta stafrænan leiðarvísi á heimasíðunni og á safninu sjálfu. Leiðarvísirinn verður aðgengilegur í Bloomberg Connects appinu og með honum verður mögulegt að fá meiri innsýn í sýningar safnsins, hvenær sem er og hvar sem er og þess vegna beint úr farsímanum.


Leiðarvísirinn inniheldur:

· Dýpri innsýn í sýningar safnsins, svo sem sögu skinnklæðanna, bátasmíði og tilurð íslensku legokubbana.

· Innsýn í heimilislíf á Vestfjörðum á 20. öld.

· Óaðfinnanlegt aðgengi: Innbyggður stuðningur með skjálesara, stillanlegri leturstærð, hljóðefni og þýðingar á yfir 40 tungumálum í gegnum Google Translate.


Þegar leiðarvísirinn er tilbúinn og hefur verið birtur verður mögulegt að sækja hann strax og skoða safnið.

Um leið opnast möguleiki fyrir gesti okkar að skoða safnið áður en þeir koma í heimsókn, eða til að rifja upp uppáhaldsgripina eftir að heimsókn lýkur.

Á safninu munu verða sett upp Bloomberg Connects skilti fyrir aðgang að stafrænu efni í gegnum QR kóða.