FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Karítas í Þýskalandi
14. september 2026

Fyrir nokkrum árum heimsótti þýskur maður að nafni Michael Liebler safnið og sá þar meðal annars sýninguna um Karítas okkar. Hann heillaðist mjög af sögu hennar og baráttuþreki og er nú að vinna að því að skrifa grein um Karítas sem á að birtast með þýsku feminísku dagatali. Á dagatalinu er fjallað um konur sem ruddu brautina fyrir aðrar og Karítas á vel heima þar. Michael hefur einnig gert útvarpsþátt um Karítas og fyrir þau sem skilja þýsku þá má hlusta á hann hér:
https://zwischenfaelle.radio-z.net/feature/karitas