FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Húmar að hausti
28. september 2026

En veturinn er spennandi!

Nú þegar veturinn er farinn að rjátla niður fjallshlíðarnar þá styttist í að Byggðasafn Vestfjarða loki fyrir veturinn. Miðvikudagur 30. september er síðasti opnunardagur þessa vertíðar en áfram er opið fyrir hópa, sérstaka viðburði og svo auðvitað á aðventunni. Þessi frétt birtist ykkur á nýrri heimasíðu safnsins en unnið hefur verið að henni síðan á vormánuðum og hún er gerð hjá Stefnu, eins og vel flestar heimasíður Ísafjarðarbæjar. Von bráðar má líka finna stafrænan leiðarvísi fyrir safnið á heimasíðunni sem og á safninu sjálfu.


Framundan í vetur eru ýmsir viðburðir og heimsóknir. Nemendur Grunnskólans á Ísafirði sem eru í vali er nefnist Hræringur, munu koma í reglulegar heimsóknir á safnið í vetur til að fræðast um starfssemi þess og menningararf svæðisins og svo er algengt að íslenskunemar sæki okkur heim.


 Á veturnóttum mun fyrrum forseti vor, dr. Guðni Th. koma í Turnhúsið og kynna nýjustu bókina sína sem heitir Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971–1974. Og á aðventu kemur Nanna Rögnvaldardóttir með fyrirlestur um matarsögu og hver veit nema hún hafi eintök af nýjustu bókinni sinni með.


Það sem hæst ber þó er Farskóli safnamanna sem haldinn er á Ísafirði 7.-9. október. Þá mun fjöldinn allur af safnafólki fylla gistirýmin á Ísafirði og nágrenni og mála bæina rauða en Farskólinn snýst þó aðallega um að vera; "árleg ráðstefna fagfólks á íslenskum söfnum, skipulögð af Félagi íslenskra safna og safnmanna. Á farskóla er lögð áhersla á að fyrirlestrar, erindi og vinnustofur nýtist ráðstefnugestum í faglegu starfi sínu. Ráðstefnan er mikilvæg starfsfólki safna í starfsþróun og símenntun, skipulögð með það að markmiði að vera dýrmætur vettvangur fræðslu-, þekkingar- og tengslamyndunar."