FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Hrefnu Láki
24. júní 2026

Þorlákur var brautryðjandi í hrefnuveiðum við Ísland og setti hann niður hrefnubyssu í bát sinn, Möggu, sem var 4 brl. trilla, sumarið 1913

Flestir Vestfirðingar sem komnir eru af léttasta skeiði kannast við að hafa heyrt talað um Hrefnu Láka, eða Þorlák Guðmundsson, f.7.desember 1877, d.17 nóvember 1950, sem bjó að Saurum í Álftafirði við Djúp. Þorlákur var brautryðjandi í hrefnuveiðum við Ísland og setti hann niður hrefnubyssu í bát sinn, Möggu, sem var 4 brl. trilla, sumarið 1913, en fyrstu hrefnuna skaut hann árið 1914. Stundaði hann svo hrefnuveiðar á Möggu í Ísafjarðardjúpi um áratuga skeið. Þorlákur var mikill veiðimaður og ekki var hann einungis góð hrefnuskytta heldur líka grenjaskytta mikil. Læt hér fylgja með tengil á grein á timarit.is um þennan mikla veiðimann. Athugið að fyrri greinin er í blaðinu í 1.tbl, 10 janúar 1943, bls.1 og svo er framhald í 2.tbl., 17 janúar 1943 á bls. 13. Afar fróðleg og skemmtileg grein.

 

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3274930