FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Það fór vart fram hjá Ísfirðingum og nærsveitafólki að í síðustu viku, dagana 7.-9. október 2026, var haldinn Farskóli safnamanna á Ísafirði. Þær Jóna Símonía Bjarnadóttir forstöðukona Byggðasafns Vestfjarða, Dagrún Ósk Jónsdóttir verkefnastjóri FÍSOS og Rannveig Jónsdóttir hjá Listasafni Ísafjarðar sáu um að skipuleggja ráðstefnuna og eiga þær þakkir skilið fyrir gott og óeigingjarnt starf.
Fjörið byrjaði strax á þriðjudagskvöldinu, þegar safnafólkið fór að tínast til allsstaðar að af landinu og stefndu beint á Dokkuna sem opin var af þessu tilefni. Daginn eftir hófst ráðstefnan þar sem misrykugir minjaverðir menningararfsins fræddust og tengdust en erindin voru af ýmsu tagi þó flest hafi fjallað um inngildingu og aðgengi. Þar má til dæmis nefna erindi sem fjallaði um aðgengi og áskoranir fyrir fólk í hjólastólum, erindi um hinseginleika í safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur og gerð var greining á á sameiningum smærri safna.
Þarna er aðeins fátt eitt nefnt af fyrirlestrum eins og gefur að skilja en þegar málstofum lauk á miðvikudeginum var haldið upp í rútu og til Suðureyrar. Þar gekk safnafólk með leiðsögn um þorpið og ýmsir höfðu orð á að langt væri síðan þau hefðu fundið peningalykt eða þau hefðu alls ekki fundið slíka lykt áður. Um kvöldið var stórkostlegt pöbbkviss sem var það stærsta sem haldið hefur verið á Dokkunni.
Dagskráin á fimmtudeginum var nokkuð stíf fram á seinnipartinn en þá gafst safnafólki svigrúm til að kanna verslanir bæjarins og gera sig til fyrir árshátíðina sem haldin var um kvöldið. Matráður Edinborgarhússins sá um að halda ráðstefnugestum söddum allan tímann og veitingastaðurinn Logn sá um matseld á árshátíðinni og eiga þau hrós skilið fyrir góðan mat og fjölbreyttan. Á árshátíðinni sá Einar Viðar um veislustjórn með miklum sóma og hljómsveitin Drumbarnir voru með örlítið nördalega tónlistarþraut sem fell afskaplega vel í kramið hjá árshátíðargestum. Hljómsveitin F1 rauður sló svo í dans að borðhaldi loknu og spiluðu án nokkurrar pásu í á þriðja tíma fyrir troðfullu dansgólfi. Við sendum auðvitað engan heim frá önfirsku balli án þess að láta fólkið syngja Hafið eða fjöllin og þetta ball var engin undantekning, núna eru þau öll Vestfirðingar.
Jóna Símonía Bjarnadóttir forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða var farskólastjóri að þessu sinni og hún var afar ánægð með það hvernig dagskráin tókst. „Við vildum gefa farskólagestum rými og tíma til að kanna svæðið á eigin vegum á milli dagskrárliða og ég held að það hafi tekist ágætlega. Allir veitingastaðir á Ísafirði fengu heimsókn frá gestum okkar og mér heyrðist að fólk hafi verið mjög ánægt með bæði farskólann og þessa heimsókn vestur.“
Farskólinn er haldinn árlega og stundum erlendis en á næsta ári verður hann á Húsavík. Þá fer vonandi sem flest safnafólk af Vestfjörðum norður til að fræðast, kynnast, tengjast og fá nýjar hugmyndir og samstarfsfólk en um það snýst einmitt ráðstefna af þessu tagi.



