FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Farskóli FÍSOS 2026
5. október 2026

Á Ísafirði dagana 7.-9. október

Á næstu dögum mun Ísafjörður fyllast af safnafólki víðsvegar af landinu þegar Farskóli FÍSOS, eða fagráðstefna safnafólks verður haldin í Edinborgarhúsinu og víðar. Um 150 manns sækir ráðstefnuna en þar er lögð áhersla á fyrirlestra, erindi og vinnustofur sem nýtast ráðstefnugestum í faglegu starfi sínu. Hún er jafnframt mikilvæg starfsfólki safna í starfsþróun og símenntun, skipulögð með það að markmiði að vera dýrmætur vettvangur fræðslu-, þekkingar- og tengslamyndunar.

Ráðstefnan flakkar á milli staða og er stundum haldin erlendis en hér fyrir vestan hefur hún ekki verið haldin síðan árið 2008. Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðukona Byggðasafns Vestfjarða er farskólastjóri í ár en með henni í stjórn eru Helga Aradóttir, Rannveig Jónsdóttir og Dagrún Ósk Jónsdóttir. Yfirskrift skólans er Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding, og verður snert á ýmsu er varðar málefnið í fyrirlestrunum. Til dæmis verður fjallað um aðgengi í friðlýstum húsum, móttöku sérhópa, hinseginleika og skynsegin sjónarhorn og sú mikilvæga spurning borin upp: „Fyrir hvern eru söfn?“


Safnafólk fær þó líka tíma til að líta upp úr glósublöðunum og anda léttar hér á Ísafirði því innan ráðstefnunnar rúmast árshátíð safnafólks sem og ýmsar uppákomur og skoðunarferðir. Byggðasafn Vestfjarða er ákaflega stolt af því að taka á móti þessum stóra hópi og vonum að þau njóti alls hins besta sem Ísafjörður hefur uppá að bjóða.


Myndin sem fylgir fréttinni hér er frá ratleik sem haldinn var á Farskólanum 2025 en hann fór fram á Selfossi.