FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Fákur ÍS 5 2022
25. júní 2026

2021 var safninu gefið þetta líkan af hugmynd að stækkuðum bát, Fáki ÍS-5, sem var opinn vélbátur.

2021 var safninu gefið þetta líkan af hugmynd að stækkuðum bát, Fáki ÍS-5, sem var opinn vélbátur. Þann bát hafði Frímann Haraldsson á Horni smíðað árið 1930. Líkanið smíðaði Gunnar Albert Hannes Hilaríusson árið 1949. Gunnar var mikill áhugamaður um skipasmíðar og hafði hug á að læra þá iðn. Eftir andlát Gunnars árið 1950 var líkanið varðveitt en 67 árum síðar var komin á það viðhaldsþörf og sá tré- og handverkshús Markúsar Erlings Andersen á Akranesi um það. 

Báturinn er einstaklega falleg smíði og ber handbragði smiðsins fagurt vitni. Gefandi er Hans Guðmundur Hilaríusson frá Hesteyri, bróðir Gunnars.