FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Fágæt vatnskanna úr postulíni 2013
23. júní 2026

Vatnskanna með mynd af Gramversluninni

Safninu áskotnaðist árið 2013 fágæt vatnskanna úr postulíni frá ofanverðri 19. öld. Hún er með gyllingu og skreytt handlitaðri teikningu af Gramversluninni á Þingeyri.

Kannan er frá Carl Tielsch verksmiðjunni í Þýskalandi. Hún er um 25 cm á hæð og mesta þvermál um 17 cm. Á botni könnunnar er merki verksmiðjunnar, nokkuð dauft, en vel má greina örn og upphafsstafina C og T undir erninum. Líklegt er að kannan sé framleidd á tímabilinu 1870-1900. Kannan er algjörlega heil, hvergi sprungin, kvarnað úr henni eða gallar á glerungi. Lok fylgir og á handfangi er myndarlegt ljón. Kannan er skreytt með gylltu munstri og í borða undir handlitaðri húsateiknigunni stendur Dyrefjord öðru megin og Iceland hinu megin. Gyllingin hefur látið á sjá en er samt býsna greinileg.Fremst á könnunni er handlituð mynd af Gramversluninni á Þingeyri, Dýrafirði. Friðrik Wendel var verslunarstjóri á staðnum á árunum 1870-1900. Hann var þýskur og kann að hafa látið gera könnuna. Bróðir hans, Hermann Wendel, var ljósmyndari og var um tíma á Þingeyri. Ekki er ólíklegt að hann hafi tekið mynd af húsunum og ljósmyndin notuð sem fyrirmynd handa teiknaranum.