Aðgengi

Bílastæði eru við inngang svæðisins. Hægt er að stöðva bíl við Tjöruhúsið til að hleypa farþegum út og inn. Tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru rétt við innganginn á svæðið.

 

Miðasalan er í Krambúð við hliðiná Tjöruhúsinu. Í Krambúðinni er safnverslun og starfsfólk sem getur gefið upplýsingar um safnið. Rampur er að útidyrum en innandyra eru þröskuldar. Dyraop eru nægilega breið til að venjulegur hjólastóll komist um en færanlegur rampur er á staðnum til að leggja yfir þröskulda.


Inngangurinn að Turnhúsinu er úr timbri og getur því verið háll í bleytu og snjó. Rampur liggur inn í húsið og 1. hæð hússins er því aðgengileg hreyfihömluðum. Brattir stigar liggja upp á næstu hæðir.

 

Göngustígar á safnsvæðinu eru sléttir malarstígar. Í votviðri myndast pollar á gangstígum.

 

Það eru bekkir á ýmsum stöðum utandyra.

 

Salerni eru í Smiðjunni. Rampur liggur að inngangi.

 

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða er í Jónshúsi og þar er rampur.

 

Á safninu býr köttur sem gjarnan röltir um svæðið eða sefur í sýningarrýmum. Þar sem Neðstikaupstaður er vinsæll staður til útivistar hjá heimafólki þá er ekki óalgengt að hundar séu á svæðinu.