Neðstikaupstaður

Bárðarslippur

1 af 3

Bárðarslippur er elsti starfandi dráttarslippur Íslendinga og var hann reistur á Torfnesi á Ísafirði. Slippurinn var samstarfsverkefni Ísafjarðarkaupstaðar og Bárðar G. Tómassonar. Með samstarfinu varð til Skipabraut Ísafjarðar h.f. og voru hluthafar í upphafi Ísafjarðarkaupstaður og allir eigendur ísfirskra fiskibáta. Hafist var handa við byggingu slippsins árið 1917 og fyrsta skipið dregið á land 1921. Marsellíus Bernharðsson kaupir slippinn af Bárði 1944 og rekur hann á Torfnesi fram undir 1970 þegar rýma þarf lóðina fyrir nýbyggingu Menntaskólans á Ísafirði og var þá færður á núverandi stað í Neðstakaupstað. Slippurinn er um þessar mundir í viðgerðarferli.

Upp